Athugið að fullbókað er á námskeiðið en hægt að skrá sig á biðlista fyrir næsta námskeið
Úrvinnsla áfalla með EMDR, listmeðferð og núvitund
Tveggja daga námskeið frá föstudegi til sunnudags með Rósu Richter, sálfræðing og listmeðferðarfræðing.
Ert þú tilbúin/n að að bæta líðan þína og breyta skaðlegu hegðunarmynstri með því að skoða rót vandans, vinna úr áföllum og byggja upp nýja framtíðarsýn?
Þetta námskeið hentar þeim sem eru tilbúnir að takast á við rót vandans, öðlast betri skilning á eigin sálarlífi, vinna úr áföllum, öðlast grunnþekkingu á hugleiðslu og leysa úr læðingi sköpunarkraft sinn og gleði með listinni. Það verður leirað, málað, dansað og sungið.
Með hjálp EMDR, sem talin er áhrifaríkasta áfallameðferð sem býðst í dag, göldrum listmeðferðarinnar, mætti hugleiðslunnar og hreyfingu úti í náttúrunni býður þetta námskeið upp á raunverulegt tækifæri til sjálfsskoðunar, endurnýjunar og breytingar.
Í EMDR-úrvinnslu deila þátttakendur ekki áföllum sínum með hópnum; hver og einn vinnur út af fyrir sig.
Námskeiðið er haldið í heilandi umhverfi Heilsustofnunar, gisting og ljúffengt heilsufæði er innifalið ásamt aðgengi að allri aðstöðu.
Verð 85.000 kr.
Fullbókað er á námskeiðið en hægt er að skrá sig á biðlista fyrir næsta námskeið hér fyrir neðan - Hér er hlekkur fyrir nánari upplýsingar um námskeiðið.