Myndsköpun
Næsta námskeið - dagsetning í vinnslu
Námskeið í myndsköpun er byggð á sálfræðikenningum C.G. Jungs.
Leiðbeinandi er Gréta Berg hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona. Námskeiðið er haldið á laugardegi frá kl.9-15 og sunnudegi frá kl.10-12
Verð fyrir dvalargesti er 8.000 kr. og verð fyrir utanaðkomandi er 16.000 kr. og með gistingu 20.000 kr.
Námskeiðið er einkum ætlað fólki:
- sem haldið er streitu
- sem á erfitt með að tjá sig
- sem eru með langvinna verki
- sem upplifir depurð, þunglyndi og kvíða
- sem hefur orðið fyrir andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi
Hvað er gert á námskeiðinu?
Persónulegar, verklegar æfingar í frjálsri myndsköpun. Hópumræður sem gefa þátttakendum tækifæri til að tjá og túlka sinn innri mann, tilfinningar, vonir og drauma. Unnið er með þemu til að vinna með innri reynslu og með því að kanna innri sköpunargáfu geta þátttakendur fundið nýjar og gagnlegar leiðir til að tjá sig, öðlast innsæi og geta deilt með öðrum innri veruleika.
Farið er í hugmyndafræði að baki listsköpunar; að standa/sitja og mála tilfinninguna. Hugleiðsla/slökun fyrir hvert þema sem málað er út frá.
Þessi reynsla hjálpar til að skilja eðli og framlag listmeðferðar.
Þessi dagur er sérstaklega fyrir þig og þína upplifun á þínu innra lífi. Leikur, sköpun, flæði, eitt leiðir af öðru í litunum.Þetta er gaman, losandi úrvinnsla með liti. Allir vinna í þögn.
Myndsköpunarnámskeið eru haldin í Listasmiðjunni á laugardögum og sunnudögum.
Dagskrá:
Laugardagur:
09:00-12:00 – Listasmiðja
12:00-12:45 – Hádegsiverður
13:00-15:30 - Listasmiðja
Sunnudagur:
10:00-12:00 – Listasmiðja
Morgunmatur er innifalinn og er matsalur opinn frá 8:30. Hádegisverður er innifalinn á laugardeginum. Á sunnudegi er hádegisverður ekki innifalinn.
Gréta Berg; „Ég kynni fyrir ykkur aðferðina frá kl. 9-9.30, hugsun er litir, tónlist er litir, flæði og spuni tengist þessu öllu. Að mála tilfinninguna.
Málað í ca 20+ mín í þremur lotum og hugleiðsla á milli til hádegis, allt í ró og notalegheitum. Matarhlé kl. 12.00-12.45. Borðað í matsal, höldum hópinn, borðum saman og spjöllum um upplifanir eða bara sitjum í þögn og hugleiðum. Mæting aftur í Listasmiðjuna kl. 13.00. Á sunnudeginum þá hafa þátttakendur náð að skilja dýpra hvað flæði og tilfinningamálin eru losandi, og fólk finnur betur hvernig má nýta þessa leið til betri líðan.“
Dagskrá á laugardeginum lýkur kl. 15:30 og þá er jafnvel gott að fara í sund ef tími gefst skola blíðlega af sér þreytuna með blessuðu vatninu.
Dagskrá á sunnudeginum er frá kl. 10:00-12:00
Námskeiðið kostar 16.000, morgunmatur innifalinn báða dagana og síðdegishressing og hádegisverður á laugardeginum. Þeir sem vilja gista greiða 20.000.
Einnig er aðgangur að baðhúsinu innifalinn báða dagana (opnunartími er 10:00-17:30 laugardag og sunnudag)
Fyrir dvalargesti er gjaldið 8.000
Skráning í síma 4830300 eða í netfangið heilsa(hjá)heilsustofnun.is
Skráning fyrir dvalargesti er í móttöku
Reynslusögur úr myndsköpun
- „Ég held að það að mála muni hjálpa mér að komast áfram og horfa fram á við.“
- „Ég er mjög ánægð að hafa tekið þátt ásamt öðrum.“
- „Gleymdi stund og stað, grét, reiði og ósanngirni. Mikið tilfinningaflæði og fannst þetta ofsalega skemmtilegt, kom mér á óvart.“
- „Í hugleiðslunum komu upp myndir sem ég ætla að gefa betri gaum að með sjálfri mér. Bæði nýtt og gamalt.“
- „Hugleiðslan hjálpaði manni af stað, auðveldar losun og flæði. Dagurinn var áhugaverður, spennandi og ólíkur því sem ég er að fást við dags daglega. Hef trú á að málun, tónlist og fleiri skapandi greinar opni fólk, rói og hjálpi til við að skapa jafnvægi og vellíðan.“
- „Það kom mér á óvart að geta málað 9 myndir fyrir hádegi. Myndefnið kom mér einnig á óvart en það bara „poppaði upp“. Það reyndi á innri heim, mikil gleði og góð tilfinning sem fylgir. Maður gleymir sér alveg og tíminn flýgur áfram, slík tilfinning fylgir listsköpun, hver sem hún er.“
- „Ég upplifði sterkar senur og tilfinningar í hugleiðslunni og reyndi að túlka það á blaðinu. Ég lagði upp með einhverja sýn sem varð svo annað og meira þegar það fór á blaðið. Svakalega gaman og áhugavert.“
- „Ég náði að loka allt úti og vera alveg í núinu, málaði bæði með hægri og vinstri hendi, lét tilfinninguna alveg ráða hvað gerðist. Frábær upplifun. Hefði ekki viljað missa af þessu.“