Taugaendurhæfing
Endurhæfingin hentar einstaklingum með taugasjúkdóma eða í kjölfar slyss og/eða aðgerða á höfði eða taugakerfi. Hún hentar fólki með skerta færni í daglegum athöfnum, hindranir á þátttöku í samfélaginu og/eða áhrif á lífsgæði. Í endurhæfingunni er stuðst við gagnreyndar aðferðir byggir á þverfræðilegri einstaklingsmiðaðri nálgun. Lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, slökun og hugleiðslu sem og fræðslu um hollar neysluvenjur og heilbrigðan lífsstíl.
Hvert er markmið meðferðarinnar?
Markmið endurhæfingarinnar er að bæta líkamlega, andlega og félagslega færni. Þannig er hægt að auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi og auka lífsgæði.
Þjálfun
Þjálfun er sniðin að þörfum hvers og eins, að mestu í hóptímum en getur verið á einstaklingsgrunni. Flestir stunda leikfimi í vatni og á þurru, fara í skipulagðar gönguferðir og taka þátt í hóptímum sem stuðla að bættri líkamsvitund og jafnvægi. Líkamsþjálfun er mikilvægur hluti endurhæfingar.
Slökun/hugleiðsla
Á Heilsustofnun eru ýmsar leiðir notaðar til að framkalla slökunaráhrif og að ná stjórn á eigin viðbrögðum við álagi. Fólk getur lært og tekið þátt í núvitund (e. mindfulness), tekið þátt í stýrðri slökun í hóptímum og/eða í gegnum hátalarakerfi á herbergjum. Einnig eru ýmis form hugleiðslu og/eða slökunar notuð í hreyfitímum.
Fræðsla
Á Heilsustofnun er lögð áhersla á margþætta fræðslu. Þar á meðal er fræðsla um eðli sjúkdóma og þætti sem geta bætt líðan og aukið færni. Í taugaendurhæfingu er sérstök áhersla lögð á fyrirlestra um álagsstjórnun ásamt fræðslu um hollt mataræði, markmiðasetningu, slökun og núvitund.
Önnur meðferð
Einstaklingsmeðferð er metin hverju sinni út frá þeim skerðingum og hindrunum sem til staðar eru. Það getur verið meðferð vegna verkja, stirðleika og truflunar á vöðva og taugakerfi. Einnig getur meðferð falist í stuðningi vegna sálrænna og/eða félagslegra þátta.
Hver er lengd meðferðar?
Lengd meðferðar er að öllu jöfnu fjórar vikur.
Árangur
Árangurstengdar mælingar eru framkvæmdar í byrjun og lok dvalar í samræmi við heilsufarsástand hvers og eins.
Hverjir koma að meðferð?
Á Heilsustofnun er starfandi þverfaglegt teymi sem starfar af heilindum að bættri heilsu í góðri samvinnu við dvalargest og í samræmi við þarfir hverju sinni. Í teyminu starfa hjúkrunarfræðingur, íþróttafræðingur, læknir, sálfræðingur, sjúkraliði og sjúkraþjálfari. Aðrir fagaðilar geta einnig komið að meðferð.