Jónas Kristjánsson, læknir (1870-1960) var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Að hans frumkvæði tók Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til starfa þann 24.júlí 1955.

ÆVI OG STARF - FRUMKVÖÐULLINN
Jónas Kristjánsson, læknir, fæddist að Snæringsstöðum í Svínadal í Húnavatnssýslu þann 20. september 1870 og lést á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði þann 3. apríl 1960.

Jónas varð fyrir þeirri miklu sorg að missa móður sína þegar hann var barn að aldri og hét hann þá föður sínum því að hann skyldi verða læknir og mætti það verða til þess að sem fæst börn misstu móður sína á unga aldri. Með dugnaði og þrautseigju lauk hann ætlunarverki sínu með aðstoð ættingja og vina. Öll ævi Jónasar bar merki þess eldmóðs sem með honum bjó. Eiginkona Jónasar var Hansína Benediktsdóttir frá Grenjaðarstað, en þau Jónas voru bræðrabörn. 

Læknishjónin settust fyrst að á Austurlandi og bjuggu lengst af að Brekku í Fljótsdal. Jónas ávann sér fljótt virðingu og hylli fyrir störf sín, en hann var talinn einhver fremsti skurðlæknir sinnar samtíðar. Jónas var skipaður héraðslæknir á Sauðárkróki árið 1911 og var hann mjög vel af honum látið af samferðarfólki og minnast margir fullorðnir íbúar Sauðárkróks hans með hlýju og virðingu. Honum voru öll framfaramál mjög hugleikin og lagði hann víða hönd á plóg til góðra verka. Þá sat hann á Alþingi um skeið.

Jónas kom víða við, hann átti þátt í því að vatnsveita var lögð til Sauðárkróks, hann var einn af stofnendum Framfarafélags Sauðárkróks og forseti þess meðan hans naut við, hann stóð að stofnun skátafélagsins Andvara 1922 og stofnaði Tóbaksbindindisfélag Sauðárkróks 1929 og var því frumkvöðull í tóbaksvörnum hér á landi, eins og í svo mörgum öðrum málum. Mesta afrek Jónasar á þessum árum var þó framganga hans í því að koma á samgöngubanni yfir Holtavörðuheiði þegar spænska veikin barst til landsins. Með þessari aðgerð var fjölda mannslífa bjargað bæði austanlands og norðan. Jónas lét af embætti héraðslæknis 1938 og fluttust þau hjónin þá til Reykjavíkur, en börn þeirra fjögur voru þá öll uppkomin og flutt að heiman. Því hefur verið haldið fram að hið eiginlega ævistarf Jónasar hafi fyrst hafist eftir að hann lauk störfum sem embættismaður tæplega sjötugur að aldri og fluttist suður. Síðustu 20 ár ævinnar vann hann að því að kynna náttúrulækningastefnuna, sem hann hafði heillast af á ferðum sínum erlendis, en stefnunni kom hann fyrst á framfæri á fundi Framfarafélags Sauðárkróks 1923. Jónas stóð að stofnun Náttúrulækningafélags Íslands á Sauðárkróki 5. júlí 1937.

Jónas var langt á undan sinni samtíð og barðist fyrir heilbrigðum lífsháttum landsmanna. Heilsustofnun er uppskera baráttu þessa mikla atorku- og hugsjónamanns, en draumur hans rættist þegar Heilsustofnun var formlega opnuð 1955. Jónas lagði sitt lóð á vogarskálarnar í því skyni að gera fólki ljóst, að heilsuna beri að virða og öllum sé skylt að líta í eigin barm og tileinka sér einkunnarorð Náttúrulækningafélags Íslands:  „BERUM ÁBYRGÐ Á EIGIN HEILSU”

MINNINGARHERBERGI JÓNASAR KRISTJÁNSSONAR LÆKNIS
Jónas bjó síðustu ár ævinnar á Heilsustofnun og hefur minningarherbergi hans staðið óbreytt frá því að Jónas lést þann 3.apríl 1960. Í minningarherberginu gefur að líta fjöldann allan af fræðiritum, myndum, lækningaáhöldum og persónulegir munum sem fylgdu Jónasi. Herbergið er opið fyrir gesti Heilsustofnunar á föstudögum frá kl.15 til 15:30 eða eftir samkomulagi. 

FRÆÐASETUR JÓNASAR KRISTJÁNSSONAR
Árið 1995 setti Heilsustofnun fræðasetur á laggirnar í minningu Jónasar Kristjánssonar læknis.

Dvöl fyrir fræðimenn í íbúð
Heilsustofnun hefur á síðustu árum boðið upp á dvöl fyrir fræðimenn sem vilja vinna að sínum hugðarefnum í ró og næði í góðri aðstöðu. Boðið er upp á dvöl í allt að 4 vikur og þar af tvær vikur án kostnaðar. Miðað er við að 3-4 einstaklingar geti nýtt sér dvöl á hverju ári.

Umsóknir og skilyrði
Umsókn um dvöl má senda til Heilsustofnunar í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Í umsókninni þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi, um hvað verkefnið snýst og hvaða tímabil hentar. Æskilegt er að viðkomandi aðili geti tengt verkefnið að einhverju leyti við starfsemina okkar og/eða þá fræðslu sem fram fer á Heilsustofnun.
Mótframlag vegna dvalar er að viðkomandi haldi fræðsluerindi um verkefnið fyrir starfsfólk og/eða dvalargesti,
Einnig hentar að halda kvöldvöku eða skemmtun, allt eftir því hvað á við hverju sinni.
Umsóknir eru lagðar fyrir framkvæmdastjóra lækninga til samþykktar.
Einnig má hafa samband við markaðsstjóra Heilsustofnunar í síma 4830300 til að fá nánari upplýsingar.

Hvað er innifalið og lýsing á íbúðinni
Innifalið í dvöl er gisting, fullt fæði, aðgangur að baðhúsi, líkamsrækt, skipulagðri göngu og ýmsum opnum fræðslutímum. Íbúðin er rúmgóð, og skiptist í svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu.
Íbúðin er þrifin einu sinni í viku og einu sinni í viku er skipt um rúmföt og handklæði, eða eftir samkomulagi.
Í íbúðinni er sjónvarp og skrifborð.

Verð
Tvær vikur                  Frítt
Þrjár vikur                   35.000 kr.
Fjórar vikur                 70.000 kr.

Verð fyrir maka eða gest er 12.000 kr. á sólarhring. Innifalið er gisting, fullt fæði, aðgangur að baðhúsi, líkamsrækt, skipulagðri göngu og ýmsum opnum fræðslutímum.  

stofnunarins2023   fyrirmyndarstofnun2023

Vilt þú gerast hollvinur Heilsustofnunar?

Við fáum reglulega reynslusögur frá gestum okkar og hér getur þú séð hvað þeir segja um dvöl sína á Heilsustofnun.

Skoða ummæli

ESPA viðurkenning

espa awards