Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Læknisfræðileg endurhæfing

HVERNIG ER SÓTT UM DVÖL Á HEILSUSTOFNUN?

VERÐLISTI SEM GILDIR TIL OG MEÐ 31. MARS 2025 FYRIR ENDURHÆFINGARDVÖL

VERÐLISTI SEM GILDIR FRÁ 1. APRÍL 2025 FYRIR ENDURHÆFINGARDVÖL

HVAÐ BER AÐ MUNA FYRIR DVÖL

Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er að lágmarki fjórar vikur og er háð því skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl.

Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu. Með læknisfræðilegri endurhæfingu er átt við meðferðir þar sem saman fara félagslegar, læknisfræðilegar, sálfræðilegar og tæknilegar úrlausnir, sem miða að því að einstaklingurinn nái mestri mögulegri færni og lífsgæðum og viðhaldi þeim þegar hann snýr heim. 

Mismunandi meðferðir eru í boði í endurhæfingu, eftir því hvað þarf að leggja áherslu á hjá viðkomandi einstaklingi.  

Hér er hægt að skoða verðlista sem gildir frá og með 1. apríl 2025.

Allar frekari upplýsingar eru veittar af innlagnaritara í síma 483 0300. Símatími innlagnafulltrúa er alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar