Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Gjafabréf á Heilsustofnun er góður kostur fyrir þá sem vilja styðja við sína nánustu sem koma til dvalar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til lengri eða skemmri tíma og hentar við öll tækifæri. Gjafabréf með upphæð að eigin vali og hægt að nýta sem innborgun fyrir dvöl í læknisfræðilega endurhæfingu, heilsudvöl, námskeið eða stakar meðferðir.

Gjafabréf fyrir heilsudvöl Hentar vel fyrir þá sem vilja gefa t.d. heilsudvöl, helgardvöl, námskeið, 5 daga heilsudvöl og heilsuviku. 

Gjafabréf á Heilsustofnun er góður kostur fyrir þá sem vilja styðja við sína nánustu sem koma til dvalar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til lengri eða skemmri tíma.

Hægt er að panta gjafabréf á þar til gerðu formi með því að smella á krækjuna hér.

Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar