Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsal 2, þriðjudaginn 13. mars 2018 kl. 20:00.

  • Eru rafrettur skaðlegar heilsunni?
  • Eru til ritrýndar rannsóknir um áhrif rafretta á heilsufar?
  • Er reykur frá rafrettum skaðlaus?
  • Hvað með reglugerðir um notkun rafretta?
  • Eru rafrettur „æskilegri“ fyrir heilsuna en sígarettureykingar?
  • Hvers vegna sækja unglingar/börn í rafrettur?

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra flytur ávarp.

Fundarstjóri: Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og sviðsstjóri sálfræðisviðs HR.

Frummælendur:

Veipur - Tæki til að hætta að reykja - staða rannsókna
Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði við Karolinska Institutet og HR.

Rafrettur, reykingar og lungun
Björn Magnússon lungnalæknir Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Og hvað svo? Eru veipsjoppur til að fá unglinga til þess að hætta „að reykja“?
Árni Guðmundsson, aðjúnkt og sérfræðingur í æskulýðsmálum.

Rafstautar – Bót eða böl
Karl Andersen, hjartalæknir Landspítala Háskólasjúkrahús.

Hver er hættan af rafrettunotkun unglinga?
Álfgeir Logi Kristjánsson, dósent við West Virginia University, School of Public Health og HR.

Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðum:

Viðar Jensson, verkefnisstjóri Tóbaksvarna hjá Embætti landlæknis og Jóhanna S. Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Ráðgjöf í reykbindindi.

Allir velkomnir.
Aðgangseyrir 2.500 kr.
Frítt fyrir félagsmenn

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar

 fyrirmyndarstofnun2023