Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

1. nóvember 2019

Í dag var undirritaður samningur milli Náttúrulækningafélags Íslands og Sagafilm um gerð heimildarmyndar um Jónas Kristjánsson lækni, stofnanda Náttúrulækningafélags Íslands og síðar Heilsustofnunar í Hveragerði. Unnið hefur verið að undirbúningi myndarinnar um nokkurra ára skeið. Í heimildarmyndinni verða gerð skil á æviskeiði Jónasar, læknisstörfum á Héraði, þar sem hann hóf feril sinn, og í Skagafirði þar sem hann var héraðslæknir á árunum 1911-1938 en þar var Náttúrulækningafélagið stofnað á Hótel Tindastóli árið 1937.

„Við erum virkilega ánægð að þessi samningur sé nú kominn í höfn enda höfum við unnið lengi að undirbúningi myndarinnar. Það er mikil saga á bakvið Náttúrulækningafélag Íslands og ómetanlegt frumkvöðlastarf Jónasar og því erum við mjög spennt að hefja formlega vinnu að þessari heimildarmynd,” segir Ingi Þór Jónsson, markaðsstjóri Heilsustofnunar NLFÍ.

„Jónas var mikill frumkvöðull, hann varaði við hvíta sykrinum og hvítu hveiti sem hann sagði „ónáttúrlega og skemmda fæðutegundir, eiturblásið og svipt öllum beztu efnum sínum. Það er og verður aldrei annað en óhæf matvara, hversu glæst og ginnandi sem hún er gerð“. Hann fór ótrauður á móti straumnum og var sannur sjálfum sér, óháð skoðunum starfsbræðra sinni sem oftar en ekki stangaðist á. Enn í dag eru heilræði hans um mataræði og heilsufar í gildi. Hans verður ekki síður minnst sem flinks skurðlæknis, til eru fjölda sagna um læknisstörf hans sem Skagafirðingar ylja sér við að segja frá.”

Myndin verður frumsýnd á 150 ára ártíð Jónsar í september árið 2020.

 

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar