Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Jafnréttinastefna Heilsustofnunar 2026 - 2029

jafnlaunavottun 2023 2026Jafnréttisstefna Heilsustofnunar byggir á jafnréttislögum nr. 150/2020 sem er ætlað að tryggja jafna stöðu kvenna, karla og fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Framkvæmdastjórn og mannauðsstjóri eru ábyrgðaraðilar. Stefnan er aðgengileg almenningi og á innra neti og gildir frá 2026-2029

Markmið
Að jafnréttisstefnan sé virk og virt af öllu starfsfólki. Gildi stofnunarinnar, umhyggja, virðing og velferð eru leiðarljós í öllum okkar samskiptum og störfum. Starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð á að virða jafnrétti kynjanna.

Launajafnrétti
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Starfsmönnum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar ekki fela í sér kynjamismunun.

Lesa má Jafnréttisstefnu Heilsustofnunar nánar hér

 

 

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar