Laus staða yfirsjúkraþjálfara á Heilsustofnun í Hveragerði
Yfirsjúkraþjálfari á Heilsustofnun í Hveragerði
Staða yfirsjúkraþjálfara er laus til umsóknar. Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fagleg ábyrgð á sjúkraþjálfun
- Daglegur rekstur deildar
- Almenn sjúkraþjálfun
- Fræðsla til dvalargesta
- Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi
Menntunar og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi
- Faglegur metnaður
- Góð færni í íslensku
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. júní. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2024.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum og einnig er starfsmannarúta til og frá Olís við Rauðavatn í Reykjavík.
Umsóknir með ferilskrá sendist til mannauðsstjóra,
Nánari upplýsingar veitir Aldís Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri, aldis@heilsustofnun .is