Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Í fjórða sinn í röð varð Heilsustofnun efst í sínum flokki í kjöri á “Stofnun Ársins” – Flokkur sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu.

Niðurstöður voru kynntar þann 13. febrúar s.l. vettvangi Sameyki, stéttarfélags í almannaþjónustu, í kjölfar málþings um mannauðsmál þar sem yfirskriftin var; Jákvæð vinnustaðamenning.

Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsfólks á vinnustöðum.

Sérstakur listi er fyrir sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu, líkt og fyrir ári. Alls náðu sex stofnanir þátttökuskilyrðum. Þessir sex vinnustaðir buðu allir öllu starfsfólki þátttöku í könnuninni. Efst á lista meðal sjálfseignastofnanna og fyrirtækja í almannaþjónustu er Heilsustofnun NLFÍ, líkt og í fyrra, en stofnunin hefur verið ofarlega á lista árum saman. LSR hækkaði sig um eitt sæti frá því í fyrra og lendir nú í öðru sæti. Jafnframt hækkar Reykjalundur sig um tvö sæti og vermir nú þriðja sætið.

 Hér má nálgast lista yfir þessa sex vinnustaði.

Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum Heilsustofnunar innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar

 fyrirmyndarstofnun2023