Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

(LA DIVINA COMMEDIA E.DANTE)
Gleðileikurinn guðdómlegi er vísun í ferð Dantes um Helvíti, Hreinsunareldinn og Paradís. Sjúkdómar, slys og önnur áföll eru stórar áskoranir fyrir marga en með endurhæfingu má komast í gegnum Hreinsunareldinn og inn í Paradís.

Heilsustofnun í Hveragerði býður fundargesti
velkomna á hádegisfyrirlestur í Rímu,
fimmtudaginn 22. janúar kl.12:10 til 13:00 – Hádegisverður

HEILSUSTOFNUN Í 70 ÁR.
Endurhæfing á Heilsustofnun, árangursmælingar og kynntar niðurstöður rannsókna á meðferð við kulnun/örmögnun.
Fundarstjóri:
Björn Rúnar Lúðvíksson – prófessor í ónæmisfræði
Erindi:
Guðrún Karlsdóttir – framkvæmdastjóri lækninga á Heilsustofnun Margrét Grímsdóttir – framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun Sigurður Skúlason – dvalargestur

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar