„Grét í koddann eða fékk sér rauðvínsglas“
Þá var engin umræða um annars stigs áföll eða áföll í starfi. Maður vann sína vinnu og fór svo bara heim og grét í koddann eða fékk sér rauðvínsglas til að róa taugarnar,“ segir Sigrún Sigurðardóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri og hjúkrunarfræðingur á Heilsustofnuninni í Hveragerði í viðtali við Ásthildi Hannesdóttur í Dagmálum Morgunblaðsins. Hún sendi nýverið frá sér bókina Áfall hvað svo?
„Ég varð fyrir gífurlegu áfalli sem ég fattaði ekki fyrr en mörgum árum seinna,“ segir Sigrún en hún kom fyrst á vettvang þar sem barn hafði drukknað þegar hún starfaði sem lögreglukona í Vestmannaeyjum árið 1995. „Ég týndi sálarrónni. Ég skildi ekki af hverju mér leið eins og mér leið.“ Sigrún segir að líklega hafi hún farið í kulnun eftir þetta áfall en þá var slíkt hvorki rætt né boðið upp á áfallahjálp. „Það var bara ekkert rætt. Maður mætti í vinnuna daginn eftir og það var ekki tekið sérstaklega á móti manni.“
Viðtalið við Sigrúnu Sigurðardóttur má finna hér.
Mynd: Skjáskot úr viðtali Dagmála Morgunblaðsins.





