Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Í dag var undirritaður nýr fjögurra ára þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029. „Samningurinn markar mikilvægt skref í að efla stöðugleika og fyrirsjáanleika í þjónustu við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda,“ segir í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. „Hámarksfjárhæð samningsins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna á ári. Með samningnum er tryggður traustur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar en síðasti samningur var gerður árið 2019.“

Alma Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ undirrituðu samninginn formlega í Matstofu Jónasar á Heilsustofnun síðdegis. Samningurinn gildir til ársloka 2029.

Heilsustofnun hefur verið frumkvöðull í áratugi og mikilvægur hlekkur í íslensku heilbrigðiskerfi. „Heilsustofnun NLFÍ hefur í áratugi gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og er leiðandi á sviði endurhæfingar. Stofnunin hefur verið frumkvöðull í þróun þverfaglegrar endurhæfingar og mats á árangri meðferða og hefur byggt upp öfluga þekkingu og reynslu sem nýtist einstaklingum víðs vegar að af landinu. Náttúrulækningafélag Íslands hefur frá upphafi verið bakhjarl starfseminnar og átt stóran þátt í uppbyggingu hennar.“

„Við erum mjög ánægð með nýjan samning sem tryggir starfsemi Heilsustofnunar til næstu þriggja ára eða til ársloka 2029 og áframhald þeirrar mikilvægu endurhæfingar sem hér fer fram,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í bréfi til starfsmanna. „Við munum áfram sinna endurhæfingu um 1.350 einstaklinga á ári og sá góði árangur sem við höfum náð fær viðurkenningu með talsvert auknum fjármunum.  Þannig er tryggt að sjúklingar munu áfram fá faglega endurhæfingu hjá þeim frábæra hópi starfsfólks sem vinnur á Heilsustofnun að því að bæta líðan og lífsgæði sjúklinga.“

Mynd: Dagný Dögg Steinþórsdóttir

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar