Viðgerð stendur yfir vegna uppfærslu kerfis
Unnið er að þessari síðu vegna uppfærslu á kerfi / 6. janúar 2025 en mun ljúka eigi síðar en á morgun, 7. janúar.
Vinsamlegast hafið samband við Heilsustofnun í síma 483 0300 eða
Takk fyrir þolinmæðina.
Unnið er að þessari síðu vegna uppfærslu á kerfi / 6. janúar 2025 en mun ljúka eigi síðar en á morgun, 7. janúar.
Vinsamlegast hafið samband við Heilsustofnun í síma 483 0300 eða
Takk fyrir þolinmæðina.
Komutími og brottför
Komutími á Heilsustofnun NLFÍ er kl. 12:30-14:00 innlagnardag. Dvalargestir eru beðnir um að rýma herbergi fyrir kl. 10:00 brottfarardag. Vinsamlega athugið að fólk þarf að vera sjálfbjarga til að geta nýtt sér endurhæfingu á Heilsustofnun og geta farið sjálft um langa ganga innanhúss.
Minnislisti:
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði er reyklaus. Öll meðferð áfengis og tóbaks eru með öllu bönnuð, inni á stofnuninni og á lóð hennar. Sama gildir um rafrettur. Dvalargestum standa til boða áhugahvetjandi viðtöl og stuðningur til reykleysis.
Eftirfarandi þjónusta er í boði á Heilsustofnun:
Nánari upplýsingar:
Í síma 483 0300 kl. 10-12 virka daga. Fyrirspurnir má senda á netfangið
Staðfestingargjald:
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald í síðasta lagi átta vikum fyrir innlagnardag. Greiðsluseðill er sendur og gjaldið er óafturkræft.
Dvalargestum er ætíð velkomið að fá heimsóknir og njóta stunda í nágrenni Heilsustofnunar. Gestkomandi er einnig velkomið að nærast í matsal Heilsustofnunar, hér er hægt að kynna sér matseðil og opnunartíma.
Gestkomandi verða að gæta því að virða húsreglur um ró og spekt í húsnæðinu og á lóð Heilsustofnunnar.
Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum um Heilsustofnun eða þig langar að heimsækja Heilsustofnun með stærri hópa, vinsamlegast hafið samband í síma 483 0300 eða í tölvupósti á
Þjónustusamningur var undirritaður milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsustofnunnar NLFÍ þann 1. apríl 2019. Samningurinn gildir til þriggja ára.
Heilsustofnun NLFÍ tók til starfa í júlí árið 1955. Jónas Kristjánsson læknir, sem var einn af brautryðjendum náttúrulækningastefnunnar á Íslandi, hafði forystu um undirbúning og uppbyggingu Heilsuhælis NLFÍ, eins og stofnunin hét þá. Fljótlega eftir opnun 1955 var hægt að taka á móti 40 gestum, en starfsemi stofnunarinnar hefur aukist og húsakostur stækkað hægt og bítandi og nú koma meira en 2000 manns árlega til dvalar á Heilsustofnun. Heilsustofnun er í eigu Náttúrulækningafélags Íslands.
Náttúrulækningastefna HNLFÍ
Náttúrulækningastefna Heilsustofnunar NLFÍ er byggð á heildrænum lækningum. Heilsuvandi einstaklinganna er skoðaður með það í huga að líta þurfi á andlegt, líkamlegt og félagslegt ástand í samhengi. Meðferðarstefnan felur m.a. í sér þá viðleitni að koma á og viðhalda eðlilegum og heilbrigðum tengslum á milli einstaklingsins og umhverfis hans og efla varnir líkama og sálar gegn hverskonar vanheilsu og sjúkdómum.
Meginhlutverk Heilsustofnunar er að stuðla að heilsuvernd, endurhæfingu og fræðslu.
Gestir þurfa að hafa fótavist og geta bjargað sér að mestu leyti sjálfir við daglegar athafnir. Við meðferð er lögð áhersla á markvissa hreyfingu, hollt mataræði, slökun og hvíld. Fræðsla og fagleg ráðgjöf er stór þáttur í starfinu og þar er lögð mest áhersla á heilsuvernd og bætta lífshætti. Náttúrulækningastefna Heilsustofnunar NLFÍ er í fullu samræmi við markmið Alþjóðaheilbrigðistofnunarinnar um bætt heilbrigði og heilsufarsþróun í heiminum og fellur hún vel að íslenskri heilbrigðisstefnu.
Stefna
Stefna Náttúrulækningafélags Íslands hefur ávallt verið sú að auka og efla þátt hugtakanna heilbrigði og heilsuvernd í umræðu og verkum, og víkja frá hinni einlitu sjúkdómaumræðu. Það eflir heilbrigði og þroska að fara eftir stefnunni, m.a. með fræðslu, neyslu holls fæðis, líkamsþjálfun, slökun og hvíld. Tilgangur og takmark náttúrulækningastefnunnar er því annars vegar heilsuvernd og hinsvegar heilsubót. Þessi markmið eru enn í fullu gildi. Heilsustofnun NLFÍ forðast kennisetningar sem ekki standast vísindalega gagnrýni. Hófsemi í líferni og skilningur á heildstæðum lausnum læknisfræðinnar, heilbrigt líferni í víðum skilningi, verður meginhlutverk félagsins í nútíð og framtíð, auk umhverfisverndar.
Heilsustofnun NLFÍ er í Hveragerði, sem er lifandi og blómlegur bær, rétt austur af Reykjavík. Aksturinn frá Reykjavík að þessum friðsæla og fallega stað tekur aðeins um það bil 30 mínútur eftir þjóðvegi 1.
Það sem gerir Hveragerði sérstakan bæ er nábýli hans við jarðhitann, því bærinn er byggður á hverasvæði og af því dregur hann nafn. Fáir bæir í heiminum geta státað af virku jarðhitasvæði í hjarta bæjarins, vellandi hverum, hvæsandi gufuaugum og á sumrin iðandi blómahafi.
Vegna jarðhitans hefur garðyrkja frá fyrstu tíð verið einn aðalatvinnuvegur Hvergerðinga, enda Hveragerði oft kallað blómabærinn. Ferðamenn hafa auk blóma og trjáplantna getað keypt nýtt og ferskt grænmeti á góðu verði. Á síðari árum hafa margir dvalið í Hveragerði sér til hvíldar og heilsubótar í lengri eða skemmri tíma. Bærinn er vel staðsettur, fjarri ys og þys höfuðborgarsvæðisins, en þó rétt innan seilingar.