Markmið námskeiðsins er finna og efla eigin styrk til að takast á við og vinna úr einkennum áfalla og langvinnrar streitu.
Unnið er með taugakerfið með fræðslu, hugleiðslu, jóga nidra djúpslökun, áfallajóga, náttúrugöngu í núvitund, slökun í vatni og samtali. Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að læra að takast á við einkenni áfalla og streitu, finna leiðir og fá ýmis verkfæri til að auka vellíðan í daglegu lífi.
Námskeiðið er haldið á Heilsustofnun í Hveragerði
Skráning er síma 483 0300 eða
Fræðsla:
- Hvað gerist í taugakerfinu við áföll og streitu?
- Leiðir til að auka seiglu
- Hugleiðsla og áfallajóga
- Djúpslökun með jóga nidra og slökun í vatni
- Núvitund í náttúrunni
- Einstaklingsviðtöl í lok námskeiðs
Innifalið í verði er gisting, ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og líkamsrækt.
Gisting í fjórar nætur
- Verð fyrir einn í einbýli 145.000 kr.
- Verð fyrir tvo í tvíbýli (á mann) 120.000 kr.
- 5% afsláttur fyrir félagsmenn NLFR og NLFA
Umsjón:
Margrét Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi og Sigrún Sigurðardóttir, doktor í hjúkrunarfræði
Sigrún Sigurðadóttir er með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi. Hún er prófessor við Háskólann á Akureyri og hefur umsjón með námskeiðinu Sálræn áföll og ofbeldi á meistarastigi. Hún hefur lokið jógakennaranámi og bætt við sig áfallamiðuðu jóga og hugleiðslunámi hjá Deepak Chopra.