Í dag verður undirritaður nýr þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Samningurinn er efnislega samþykktur en Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands undirrita samninginn forlega í Matstofu Jónasar á Heilsustofnun um eða upp úr hádegi í dag. Við sama tækifæri verður samningurinn kynntur efnislega. Samningurinn gildir til ársloka 2029.

Höfundur Pálmi Jónasson 26. maí, 2026

„Í veikindaleyfinu endaði ég á dvöl á heilsuhælinu í Hveragerði, sem er vægast sagt frábær staður að vera á,“ segir Jón Viðar Matthíasson í viðtali á Vísi.is. Jón Viðar er fyrrverandi slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og nú framkvæmdastjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins.

Undanfarin ár hafa stjórnendur Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins sett fram framtíðarsýn og yfirlit yfir þau verkefni sem áhersla er lögð á. Áhersla er ætíð lögð á forgangsröðun mikilvægustu þátta til að efla gæði þjónustunnar og mælanleika.

Árlegur fjöldi dvalargesta á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði er að jafnaði 1.350. Árið 2025 voru dvalargestir 1.302 en í þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands er gert ráð fyrir 1.350. Fjöldi legudaga var 36.649 en samningurinn miðar við 37.800 legudaga.

Ársfundur Heilsustofnunar verður haldinn á Heilsustofnun í Hveragerði þriðjudaginn 21. apríl nk. kl. 14:30 í Kapellunni.

Farið verður yfir ársskýrslu, starfsemi og árangur á síðasta ári

Fundurinn er opinn öllum og er áætlað er að fundinum ljúki um kl. 15:15 og boðið verður upp á léttar veitingar í Matstofu Jónasar að fundi loknum

Öll velkomin – Berum ábyrgð á eigin heilsu