Námskeiðið Streita, áföll og taugakerfið var haldið í annað sinn hér á Heilsustofnun í byrjun nóvember sl.

Fullbókað hefur verið á námskeiðin sem spannar fjóra daga og er boðið upp á fræðslu um afleiðingar áfalla og langvinnrar streitu á andlega og líkamlega heilsu og kynntar ýmsar leiðir til að vinna með áhrif þess. Mikil áhersla er lögða á slökun, jóga nidra djúpslökun, möntruhugleiðslu o.fl. Góður og heilsusamlegur matur er að sjálfsögðu innifalinn ásamt aðgengi að baðhúsinu Kjarnalundi, líkamsrækt o.fl.
Námskeið verða eftir áramót og við munum kynna það vel þegar dagsetningar liggja fyrir.

Höfundur Pálmi Jónasson 10. september, 2026

Búið er að selja sjö íbúðir við Lindarbrún í Hveragerði. Íbúðirnar eru sjálfbærnivottaðar með LEED vottunarkerfinu. Hér má sjá teikningar og verð á þeim íbúðum sem enn eru óseldar.

Náttúrulækningafélag Íslands er nú að selja sjálfbærnivottaðar íbúðir við Heilsustofnun í Hveragerði. Íbúðirnar eru hugsaðar fyrir þau sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar og um leið einstakt tækifæri fyrir þau sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi. Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum við Lindarbrún rennur til að bæta aðstöðu Heilsustofnunar.

„Ég fokking kláraði maraþon,“ segir Þorsteinn Haukur Harðarson á Facebook síðu sinni. „Frá sjúkrarúmi í heilt maraþon á 1318 dögum.“ Þorsteinn Haukur var orðinn 150 kíló þegar hann fór á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði fyrir rúmum þremur árum.

Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins hefur um árabil verið með fræðslu, námskeið og streitumeðferð á Heilsustofnun í Hveragerði.

Í viðtali hjá Heimildinni ræðir Margrét við Ragnheiði Linnet um langvarandi streitu og áreiti sem geta haft skaðleg áhrif. Margrét og Sigrún Sigurðardóttir prófessor við HA hafa verið með námskeið á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins þar sem þær kenna aðferðir til þess að takast á við streitu og afleiðingar áfalla. Viðtalið við Margréti er birt hér að neðan í heild sinni með góðfúslegu leyfi Heimildarinnar.

Í dag var undirritaður nýr fjögurra ára þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029. „Samningurinn markar mikilvægt skref í að efla stöðugleika og fyrirsjáanleika í þjónustu við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda,“ segir í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. „Hámarksfjárhæð samningsins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna á ári. Með samningnum er tryggður traustur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar en síðasti samningur var gerður árið 2019.“