Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Líf án streitu

Námskeiði er lokið - dagsetningar fyrir haustnámskeið eru í vinnslu

Námskeiðið Líf án streitu- lærðu að njóta lífsins - 7 daga heilsudvöl 11.-18. september 2016

Streita birtist í ýmsum myndum. Hún getur komið fram í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum.

Markmið streitunámskeiðsins er að læra að þekkja einkenni streitu, skoða hvað veldur, læra að hægja á og vera til staðar í augnablikinu. 

Kenndar eru aðferðir til að þekkja sína streituvalda og einkenni og fá innsýn inn í leiðir til að auka streituþol. Með fjarlægð frá daglegu amstri gefst tækifæri til að skoða eigin líðan og aðstæður og kynnast ólíkum leiðum til að takast á við streitu með það að markmiði að öðlast jafnvægi og ró í daglegt líf. Á námskeiðinu er lögð áhersla á heildræna nálgun með hollu mataræði, fræðslu, slökun og hugleiðslu, hæfilegri hreyfingu og útivist í fallegu umhverfi.

 Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja njóta lífsins betur, lifa lífinu aðeins hægar og huga að andlegri og líkamlegri líðan. Dvölin gefur einnig einstakt tækifæri til að taka upp nýjar og skynsamlegar leiðir hvað varðar hreyfingu, næringu og svefn.

Innifalið á námskeiði og dagskrá:

  • Gisting
  • Ljúffengur og hollur matur
  • Aðgangur að sundlaugum og baðhúsinu Kjarnalundi
  • Aðgangur að líkamsrækt
  • Jóga
  • Núvitund (mindfulness) og hugleiðsla
  • Fræðsla og hóptímar
  • Skipulögð ganga
  • Slökunartímar
  • Leikfimi eða vatnsþrek
  • Kvöldvaka
  • Námskeiðsgögn og matreiðslubók

Verð 145.000 kr. á mann – 137.750 kr. á mann í tvíbýli.

Skráning á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 4830300

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar