Störf í boði

Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Á Heilsustofnun fer fram einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum. Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja þá til athafna daglegs lífs.
Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.
Störf í boði
Læknir
Óskum eftir að ráða endurhæfingarlækni eða annan sérfræðilækni sem hentar starfseminni vel svo sem heimilislækni, lyflækni, öldrunarlækni eða geðlækni.
Starfslýsing: Viðtal og skoðun nýrra sjúklinga og gerð meðferðaráætlunar, þverfagleg teymisvinna, tilfallandi læknisstörf og bakvaktir. Um framtíðarstarf er að ræða en sumarafleysing kemur einnig til greina.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Reynsla og áhugi á rannsóknarvinnu er kostur.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í sumar. Um er að ræða fjölbreytt starf í þverfaglegu samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfið felur í sér einstaklingsmiðaða hjúkrun, almenn hjúkrunarstörf og fræðslu. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Sjúkraliði
Sjúkraliði óskast til sumarafleysinga. Um er að ræða fjölbreytt starf í þverfaglegu samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi og góð íslenskukunnátta
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af þverfaglegu meðferðarstarfi er kostur
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veita:
G. Birna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri lækninga –
Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar -
Stefanía Steina Ólafsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar –
Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri –
Möguleiki er á húsnæði á staðnum. Einnig ekur starfsmannarúta til og frá Olís við Rauðavatn í Reykjavík.
Umsóknir með ferilskrá berist til starfsmannastjóra á