Gjafabréf
Gefðu gjafabréf
Gjafabréf á Heilsustofnun er tilvalin gjöf til þeirra sem koma til hefðbundinnar dvalar, en einnig sem tækifærisgjöf við hin ýmsu tilefni. Hægt er að panta gjafabréfin hjá
Gjafabréf á Heilsustofnun er tilvalin gjöf til þeirra sem koma til hefðbundinnar dvalar, en einnig sem tækifærisgjöf við hin ýmsu tilefni. Hægt er að panta gjafabréfin hjá
Almennar starfsumsóknir skal senda til Aldísar Eyjólfsdóttur starfsmannastjóra í netfangið
Einnig er tekið við umsóknum í bréfleiðis.
Utanáskrift umsókna er:
Heilsustofnun NLFÍ
b.t. starfsmannastjóra
Grænumörk 10
810 Hveragerði
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri,
Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Á Heilsustofnun fer fram einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum. Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja þá til athafna daglegs lífs.
Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.
Hvað er í boði á Heilsustofnun?
Heilsustofnun er fyrst og fremst endurhæfingastofnun fyrir þá sem koma í læknisfræðilega endurhæfingu með beiðni frá lækni.
Hvað er læknisfræðileg endurhæfing?
Læknisfræðileg endurhæfing er endurhæfingarmeðferð samkvæmt þjónustusamningi Heilsustofnunar við Sjúkratryggingar Íslands.
Hvað er innifalið í verði við læknisfræðilega endurhæfingu?
Innifalið í læknisfræðilegri endurhæfingu er einstaklingsmiðuð meðferð, gisting, fullt fæði ásamt allri annarri þjónustu sem veitt er á Heilsustofnun. Dvalargestir hafa aðgang að sundlaug og æfingarsal á auglýstum opnunartímum auk almennri dagskrá (kvöldvökur o.s.frv.).
Hver er kostnaðurinn við læknisfræðilega endurhæfingu?
Þeir sem koma í læknisfræðilega endurhæfingu þurfa að greiða sjálfir fyrir gistingu og fæði. Mismunandi verð er eftir því hvernig herbergi er valið. Uppgefið verð er sá hluti er sjúklingi ber að greiða. Sjá verðlista hér sem dvalargestir þurfa sjálfir að greiða Sjá verðlista yfir það verð sem dvalargestir þurfa að greiða sjálfir
Hversvegna er munur á verði herbergja?
Verðmunur er tilkominn vegna herbergja í mismunandi gæðaflokkum, en herbergin eru misvel búin ýmsum þægindum, s.s. eftir aldri og hvort herbergi eru með salerni og/eða sturtu.
Hvernig er sótt um dvöl í læknisfræðilegri endurhæfingu?
Skilyrði er að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Allir sem sækja um fá sent svarbréf þar sem fram kemur tilboð um dvöl og dvalartíma. Með svarbréfi fá sjúklingar sent eyðublað þar sem þeir þurfa að merkja við ýmsar óskir sínar, þ.m.t. óskir um herbergi.
Hvað eru víxlböð - Kneipp böð og hvernig virka þau?
Víxlböð (Kneipp) er náttúrulegar lækningaaðferðir náðu miklum vinsældum um alla Evrópu á 19. öld, einkum í Þýskalandi. Það eru svonefndar náttúru- og baðlækningar með áherslu á náttúrulega næringu, hvíld og næga hreyfingu til að stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum. Í Þýskalandi kom Sebastian Kneipp (1821-1897) þessum náttúrulegu lækningaaðferðum saman í kerfi, sem byggist einkum á baðlækningum.
Aðferðir Kneipp stuðla að heildrænni meðferð, en einblína ekki einvörðungu á meinið sjálft. Þekkt aðferð eru svokölluð víxlböð, þar sem gengið er til skiptis í heitu og köldu vatni. Þessi aðferð eykur blóðflæði og þrek. Aðferðir Kneipp eru náskyldar hefðum og meðferðum, sem beitt hefur verið í Heilsustofnun NLFÍ frá því að hún tók til starfa árið 1955. Aðferðir Kneipp eru notaðar með góðum árangri í fjölmörgum Evrópulöndum, Asíu og Bandaríkjunum.
Víxlböð eru góð við verkjum og þreytu í fótum sem geta m.a. stafað af æðaþrenglsum. Víxlböð taka 10-15 mínútur. Byrjað er í 3-6 mínútna heitu kálfadjúpu fótabaði (38-42°C). Síðan er farið í 10-30 sek. Kalt fótabað (15-20°C). Þetta er gert þrisvar. Gott er að hreyfa fæturnar á meðan. Alltaf er endað í kalda vatninu.
Hvað er núvitund?
Orðið núvitund er þýðing á enska orðinu mindfulness. Núvitund á rætur sínar að rekja til aldagamallar hugleiðsluhefð austurlanda. Þar er litið á núvitund sem leið til að hjálpa okkur að sjá skýrar hvernig hugur okkar starfar og sem leið fyrir hvern sem er til þess að öðlast jafnlyndi og hugarró.
Má reykja á Heilsustofnun?
Reykinar eru með öllu bannaðar, bæði inni á stofnuninni og á lóð hennar. Fyrir þá sem dveljast á Heilsustofnun NLFÍ af öðrum ástæðum og vilja nota tækifærið til þess að hætta að reykja veitir Heilsustofnun NLFÍ stuðning við að hætta að reykja. Í boði eru stuðnings- og hvatningarviðtöl hjá hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum.Þessi meðferð er í boði árið um kring.
Hvað er heilsuefling?
Hvíldar og hressingardvöl er ætluð fyrir þá sem vilja koma til hvíldar, hressingar, til að efla heilsuna, vegna forvarna eða til að temja sér nýjan lífsstíl. Gesturinn ber allan kostnað sjálfur. Ekki er þörf á að læknir sendi inn beiðni. Sjá verð á heilsudvöl HÉR.
Hvaða önnur þjónusta er í boði?
Eftirfarandi þjónusta er í boði:
Þráðlaust net er á herbergjum og í sameiginlegu rýmum - ekki þarf aðgangsorð
Matstofa Jónasar
Boðið er upp á heilsufæði í veitingasal Heilsustofnunar; morgunverð, hádegisverð, miðdagshressingu og kvöldverð.
Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ýmis konar heil korn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Fæðið inniheldur einnig egg og mjólkurvörur.
Leitast við að nota eins lítið af salti, harðri fitu og sykri eins og mögulegt er. Það er stefna HNLFÍ að hafa sem minnst af unnum matvælum, við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum. Við bökum okkar eigið brauð úr 100 % heilhveiti og hluti af lífrænu grænmeti sem er á boðstólum er ræktað á staðnum. Almenningur hefur aðgang að Matstofu Jónasar, opið er í hádeginu frá 11:30-12:45 og á kvöldin kl. 17:45-19:00
Stakar meðferðir s.s. heilsunudd, sjúkranudd, nálastungur og leirbað - https://www.heilsustofnun.is/heilsudvol/stakar-medferdir
Baðhúsið - Kjarnalundur
Baðhúsið er opið frá kl. 7:30- 20:30 á virkum dögum en frá kl. 10:00 - 17:30 um helgar. Lokað er fyrir almenning.
Snyrtistofan Dís
Tímabókanir í Noona appi eða
Hársnyrtistofan Gná
Boðið er upp á alhliða hársnyrtingu fyrir bæði dömur og herra.
Opið alla virka daga.
Tímapantanir eru í síma 483 0274 eða 691 1036.
Heilsubúðin
Á Heilsustofnun er verslun sem selur ýmsar vörur á sanngjörnu verði. Fatnaður, sundföt, snyrtivörur, krem og margt fleira.
Opið mánudaga til fimmtudaga frá 11:30-16:00.
Síma 483 0352.
Stjórn Heilsustofnunar |
||
| Gunnlaugur K. Jónsson | Forseti NLFÍ | |
| Bryndís Björk Ásgeirsdóttir | Prófessor | |
| Björn Rúnar Lúðvíksson | Prófessor | |
Varamenn |
||
| Lára M.Sigurðardóttir | Hjúkrunarfræðingur | |
| Anna M. Guðmundsdóttir | Sjúkraþjálfari | |
| Geir Jón Þórisson | Fyrrv.yfirlögregluþjónn | |
Framkvæmdastjórn |
||
| Þórir Haraldsson | Forstjóri | thorir[hjá]heilsustofnun.is |
| G. Birna Guðmundsdóttir | Framkvæmdastjóri lækninga | birna[hjá]heilsustofnun.is |
| Margrét Grímsdóttir | Framkvæmdastjóri hjúkrunar | margretg[hjá]heilsustofnun.is |
| Brynjar Þórsson | Framkvæmdastjóri rekstrar | brynjar[hjá]heilsustofnun.is |
Skrifstofa |
||
| Aldís Eyjólfsdóttir | Starfsmannastjóri | aldis[hjá]heilsustofnun.is |
| Brynjar Þórsson | Framkvæmdastjóri rekstrar | brynjar[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Friðriksdóttir | Þjónustustjóri | gudrunf[hjá]heilsustofnun.is |
| Ingi Þór Jónsson | Markaðsstjóri | ingi[hjá]heilsustofnun.is |
| Sabine Bernholt | Bókari | sabine[hjá]heilsustofnun.is |
| Svala Axelsdóttir | Verslunarstjóri | svalaa[hjá]heilsustofnun.is |
| Þórir Haraldsson | Forstjóri | thorir[hjá]heilsustofnun.is |
Læknastofur |
||
| Ása Valgerður Gunnsteinsdóttir | Innlagnaritari | |
| Elfa Margrét Magnúsdóttir | Læknir | elfa[hjá]heilsustofnun.is |
| Erla María Sigurðadóttir | Heilbrigðisgagnafræðingur | erla.maria[hjá]heilsustofnun.is |
| G. Birna Guðmundsdóttir | Framkvæmdastjóri lækninga | birna[hjá]heilsustofnun.is |
| Dvalarbeiðnir | Innlagnarstjóri | beidni[hjá]heilsustofnun.is |
| Geir Gunnar Markússon | Næringarfræðingur | ggunnar[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Karlsdóttir | Læknir | gudrunk[hjá]heilsustofnun.is |
| Minghai Hu | Nálastungulæknir | nalastungur[hjá]heilsustofnun.is |
| Valdís Fríða Manfreðsdóttir | Læknir | valdis[hjá]heilsustofnun.is |
| Ólöf Waltersdóttir | Móttökuritari/deildarstjóri | olof[hjá]heilsustofnun.is |
| Þorkell Guðbrandsson | Læknir | thorkell[hjá]heilsustofnun.is |
| Þorgerður Guðmundsdóttir | Sálfræðingur | |
| Þórey Þormar | Sálfræðingur | thorey[hjá]heilsustofnun.is |
Hjúkrun |
||
| Aðalheiður Einarsdóttir | Sjúkraliði | adalheidure[hjá]heilsustofnun.is |
| Arthur Daníel O´Brien | Sjúkraliði | arthur[hjá]heilsustofnun.is |
| Bryndís Böðvarsdóttir | Sjúkraliði | bryndis[hjá]heilsustofnun.is |
| Dagbjört Helga Guðmundsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | dagbjort[hjá]heilsustofnun.is |
| Elvar Geir Geirsson | Sjúkraliði | elvar[hjá]heilsustofnun.is |
| Esther T. Halldórsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | esther[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðný Arngrímsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | gudny[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðný Karolína Axelsdóttir | Sjúkraliði | karol[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Friðriksdóttir | Þjónustustjóri | gudrunf[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Ásta Gunnarsdóttir | Sjúkraliði | gudrunasta[hjá]heilsustofnun.is |
| Ingibjörg Katrín Stefánsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | ingibjorgs[hjá]heilsustofnun.is |
| Margrét Grímsdóttir | Framkvæmdastjóri hjúkrunar | margretg[hjá]heilsustofnun.is |
| Norbert Ægir Muller | Hjúkrunarfræðingur | norbert[hjá]heilsustofnun.is |
| Rannveig Ingvadóttir | Sjúkraliði | rannveig[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigrún Sigurðardóttir | Hjúkrunarfræðingur | sigruns[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigurbjörg Hlöðversdóttir | Sjúkraliði | sibbah[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigurbjörg Viðarsdóttir | Sjúkraliði | |
| Stefanía Sigurjónsdóttir | Deildarstjóri hjúkrunar | stefania[hjá]heilsustofnun.is |
| Steinunn María Daðadóttir | Hjúkrunarfræðingur | steinunn.maria[hjá]heilsustofnun.is |
| Steinunn M. Sigurðardóttir | Hjúkrunarfræðingur | steinunn[hjá]heilsustofnun.is |
Sjúkraþjálfun/íþróttakennarar |
||
| Berglind Elíasdóttir | Íþróttakennari | berglinde[hjá]heilsustofnun.is |
| Dröfn Guðbjörnsdóttir | Íþróttakennari | drofn[hjá]heilsustofnun.is |
| Eygló Hansdóttir | Íþróttakennari | eygloh[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Ásta Garðarsdóttir | Sjúkraþjálfari | gudruna[hjá]heilsustofnun.is |
| Halldóra Sigurðardóttir | Sjúkraþjálfari | halldora[hjá]heilsustofnun.is |
| Heiðrún Erna Hlöðversdóttir | Sjúkraþjálfari | heidrun[hjá]heilsustofnun.is |
| Lilja Dögg Erlingsdóttir | Sjúkraþjálfari | lilja[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigrún Vala Björnsdóttir | Yfirsjúkraþjálfari | sigrunvala[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigurlín Garðarsdóttir | Íþróttakennari | sigurlin[hjá]heilsustofnun.is |
| Steinunn Hulda Magnúsdóttir | Íþróttakennari | steinunnhulda[hjá]heilsustofnun.is |
Nudd– og baðdeild |
||
| Dagný Dögg Steinþórsdóttir | Leirböð | dagny[hjá]heilsustofnun.is |
| Elsa Lára Arnardóttir | Sjúkranuddari | elsa[hjá]heilsustofnun.is |
| Erlingur Arthúrsson | Sjúkranuddari | erlingur[hjá]heilsustofnun.is |
| Helga B. Ólafsdóttir | Heilsunuddari | helgabo[hjá]heilsustofnun.is |
| Rósa Björk Ágústsdóttir | Heilsunuddari | rosa[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigurður B. Jónsson | Yfirsjúkranuddari | sigurdurb[hjá]heilsustofnun.is |
| Sigurbjörg Guðbjargardóttir | Leirböð | sigurbjorgf[hjá]heilsustofnun.is |
| Unnur Kjartansdóttir | Sjúkranuddari | unnur[hjá]heilsustofnun.is |
| Þórdís Ásgeirsdóttir | Heilsunuddari | thordis[hjá]heilsustofnun.is |
Ræsting |
||
| Anna Helen Sveinbjörnsdóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Elín Wiium | Ræstingarstjóri | elin[hjá]heilsustofnun.is |
| Anna Kristín Ingvarsdóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Guðrún Ósk Gísladóttir | Ræsting | gudrunosk[hjá]heilsustofnun.is |
| Jenný Hugrún Wiium | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Jenný Sæmundsdóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Margrét Karlsdóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Ragnheiður Ásta Styrmisdóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
| Svava Brynja Bjarnadóttir | Ræsting | raesting[hjá]heilsustofnun.is |
Iðnaðarmenn |
||
| Ólafur Ragnarsson | Yfirumsjón fasteigna | olafurr[hjá]heilsustofnun.is |
| Jón Guðlaugsson Nielsen | Pípulagningameistari | jong[hjá]heilsustofnun.is |
| Lárus Sigurðsson | Aðstoðarmaður iðnaðarmanna | larus[hjá]heilsustofnun.is |
Garðyrkja |
||
| Jónas V. Grétarsson | Garðyrkjustjóri | jonas[hjá]heilsustofnun.is |
Eldhús |
||
| Andrés Hugo de Maaker | Eldhús | andres[hjá]heilsustofnun.is |
| Elísabet Emma Björgvinsdóttir | Eldhús | |
| Feng Jiang Hannesdóttir | Eldhús | feng[hjá]heilsustofnun.is |
| Halldór Steinsson | Yfirmatreiðslumaður | halldors[hjá]heilsustofnun.is |
| Jolanta Orlova | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Jódís Sigurðardóttir | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Kanshanok Maiprakhon | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Kantawan Boonlert | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| María Rubiela Ruiz Arangro | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Matt Thongmat Nonthakhamjan | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Nongtak Oskarsson | Eldhus | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
| Ruyi Zhao | Eldhús | ruyi[hjá]heilsustofnun.is |
| Ragnar Pétursson | Matreiðslumaður | ragnar[hjá]heilsustofnun.is |
| Sindri Freyr Alexanderson | Eldhús | eldhushjá]heilsustofnun.is |
| Svetlana Simanova | Eldhús | eldhus[hjá]heilsustofnun.is |
Sundlaug - Vaktmenn |
||
| Erla Rún Kaaber | Yfirsundlaugarvörður | erla.run[hjá]heilsustofnun.is |
| Hanna Steinsdóttir | Sundlaugarvörður | sundlaug[hjá]heilsustofnun.is |
| Lilja Ísey | Sundlaugarvörður | lilja[hjá]heilsustofnun.is |
| Máni Páll Eiríksson | Sundlaugarvörður | sundlaug[hjá]heilsustofnun.is |
| Elvar Páll Sævarsson | Vaktmaður | elvars[hjá]heilsustofnun.is |
Sækist þú eftir læknisfræðilegri endurhæfingu?
Þú verður að hafa samband við þinn heimilislækni eða sérfræðing sem sendir inn umsókn til Heilsustofnunar.
Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er að lágmarki 4 vikur.
Þegar umsókn hefur borist þarf að velja gistingu og er hægt að hafa samband við innlagnaritara í síma 483 0300 á milli kl. 10:00-12:00 alla virka daga.
Einnig er hægt að fylla út rafræna ósk um gistingu hér: Gisting - val á herbergi
Heilsustofnun NLFÍ býður upp á tvenns konar dvalarmöguleika:
I. Læknisfræðileg endurhæfing, en þá er meðferð greidd að stórum hluta af íslenska ríkinu.
Í því tilfelli er skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Læknir getur farið inn á www.heilsustofnun.is og valið “fyrir fagfólk/beiðnir” og útfyllt beiðni. Beiðnin sendist í póstfang Heilsustofnunar
Allir sem sækja um fá sent svarbréf þar sem kemur fram tilboð um dvöl og dvalartíma. Hægt er að velja á milli einbýli eða tvíbýli, en dvalargjaldið fer eftir gistiaðstöðunni. Með svarbréfi fá sjúklingar sent eyðublað þar sem þeir þurfa að merkja við ýmsar séróskir sínar, þ.m.t. um herbergi.
Kynning á meðferðum og á titilsíðu undir fyrirsögninni "Læknisfræðileg endurhæfing".
II. Hvíld, slökun og heilsuefling, en þá koma dvalargestir á eigin vegum og bera allan kostnað sjálfir.
Þá er ekki þörf á að læknir sendi inn beiðni. Í þessu tilfelli hringir gesturinn í innlagnaritara í síma 483 0300 og sækir um dvöl eða sendir bréf á veffang
Símatími innlagnafulltrúa er alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00 í síma 4830300
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á veffang
Auglýsing um skrá yfir störf hjá Heilsustofnun í Hveragerði, sem eru undanskilin verkfallsheimild.
Skrá yfir þau störf sem eru undanskilin verkfallsheimild, skv. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna með síðari breytingum, en falla undir 3. – 6. tölulið 1. mgr:
Starfsheiti Stöðugildi Stéttarfélag
Lágmarksöryggismönnun hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða er eftirfarandi: