Náttúrulækningafélag Íslands er nú að selja sjálfbærnivottaðar íbúðir við Heilsustofnun í Hveragerði. Íbúðirnar eru hugsaðar fyrir þau sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar og um leið einstakt tækifæri fyrir þau sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi. Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum við Lindarbrún rennur til að bæta aðstöðu Heilsustofnunar.

Námskeið 25.-29. mars 2026– frá miðvikudegi til sunnudags

Leiðir til jafnvægis

Markmið námskeiðsins er finna og efla eigin styrk til að takast á við og vinna úr einkennum áfalla
og langvinnrar streitu.
Unnið er með taugakerfið með fræðslu, hugleiðslu, jóga nidra djúpslökun, áfallajóga, náttúrugöngu í núvitund, slökun í
vatni og samtali.

Staðfest er að fjárveiting til Heilsustofnunar sé innan við helmingur af því sem aðrir fá fyrir sambærilega þjónustu.

Á 70 ára afmælisári Heilsustofnunar blasa við erfiðar áskoranir. Heilsustofnun hefur frá upphafi verið hornsteinn í heilsueflingu og endurhæfingu, veitt öfluga heilbrigðisþjónustu og oft verið í fararbroddi nýjunga og nýsköpunar. Jónas Kristjánsson, stofnandi og frumkvöðull, lagði allar eigur sínar í uppbyggingu Heilsustofnunar og Náttúrulækningafélag Íslands hefur fjármagnað húsnæði og aðstöðu en aldrei hefur komið framlag frá ríkinu til uppbyggingar.

Evrópsku Heilsulindasamtökin ESPA hafa veitt Heilsustofnun í Hveragerði viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf í Hveragerði á Íslandi.

Viðurkenningin var veitt við við hátíðlega athöfn á aðalfundi samtakanna í Haapsalu í Eistlandi 9. október. Í viðurkenningarskjalinu segir að Heilsustofnun fái þessa viðurkenningu fyrir framúrskarandi gæði og árangur við endurhæfingu, nýsköpun í vatnsmeðferð og staðfestu í heilbrigðisþjónustu í 70 ár.