Hjúkrunarfræðingur óskast til sumarafleysinga á Heilsustofnun í Hveragerði. Um er að ræða fjölbreytt starf í þverfaglegu samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfið felur í sér einstaklingsmiðaða hjúkrun, almenn hjúkrunarstörf og fræðslu. Unnið er á þrískiptum vöktum. Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Umsóknir með ferilskrá berist til starfsmannastjóra á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á:
https://heilsustofnun.is/heilsustofnun/storf-i-bodi
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar – This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Stefanía Sigurjónsdóttir deildarstjóri hjúkrunar – This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri – This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. s. 4830300
Hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi og góð íslenskukunnátta
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af þverfaglegu meðferðarstarfi er kostur
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til 26. maí 2021